Rit
um módelflug Rit
um listflugskeppnir 2001 Rit
um dómgæslu í listflugi

![]()
Mig langar til að fljúga fjarstýrðri flugvél,
hvernig byrja ég?
Gamalt máltæki segir "sígandi lukka er best". Þetta á vel
við um módelflug, því auðvelt er að ætla sér um of. Ef vel á að
takast til er mjög áríðandi að byrja rétt og og fara að ráðum þeirra
sem náð hafa tökum á íþróttinni. Þess vegna er lang best að byrja
á því að tala við þá sem hafa nokkra reynslu og hafa lært af öllum
þeim mistökum sem þeir hafa gert. Til dæmis er fróðlegt að fara út
á módelflugvöll á góðviðrisdegi og horfa á menn fljúga. Mörg tímarit
um módelflug fást hér á landi, en þau eru flest á
ensku. Síðast og ekki síst er rétt að gerast félagi í flugmódelfélagi
og sækja fundi, það er ekki skylda að vera félagi til að sækja
fundi, það eru allir velkomnir sem áhuga hafa á módelflugi. Flugmódelfélagið
Þytur er með heimasíðu þar sem er hægt að nálgast grunnupplýsingar og síma. Þar eru
einnig upplýsingar um það sem er á döfinni, svo sem mót og fundi.
Hvernig byrjendamódel er best?
Bestu flugmódelin fyrir byrjendur hafa þann eiginleika að þau fljúga
næstum sjálf. Ef flugmanni verða á mistök er oft nóg að sleppa stýripinnunum
og módelið réttir sig af nánast sjálft í flestum tilfellum Þannig
flugmódel er háþekja (vængur ofan á skrokk) af miðlungsstærð. Vængur
er flatbotna og án hallastýra. Módelið er smíðað úr balsa og með væng
sem byggður er sem grind. Vængur er töluvert uppsveigður. Mótorstærð
er um 6,5 rúmsentimetrar eða 0,40 rúmtommur, en þannig mótor er oft
kallaður „40" mótor. Það er mjög fróðlegt að koma í heimsókn
út á
Hvort er betra að kaupa tilbúið módel eða
smíða sjálfur?
Hægt er að kaupa meira og minna tilbúin módel sem aðeins þarf að
setja fjarstýringu og mótor í. Kosturinn er vissulega sá að hægt er að
gera módelið flughæft á einni viku, en ókostir eru samt ýmsir. Til dæmis
er mun erfiðara að lagfæra þannig módel eftir óhapp en módel sem smíðað
er úr balsa. Tilbúin módel eru auk þess töluvert dýrari en ósamsett.
Byrjendum er því ráðlagt að smíða sjálfir sitt módel, enda veitir
það einnig mun meiri ánægju, auk þess sem menn læra meira á því.
Er erfitt að smíða módel?
Það er ekki erfitt ef menn eru sæmilega handlagnir. Aðalatriðið er
að gefa sér tíma og skoða vel leiðbeiningarnar áður en lím er borið
á. Það er alveg ótrúlegt hvaða vitleysu hægt er að gera þegar maður
er að flýta sér! Reikna má með að smíðatími byrjendamódels sé 50
til 70 tímar, eða t.d. 5 tímar á viku í 3 mánuði. Aðalatriðið er að
vængurinn sé ekki undinn og að skrokkurinn líkist ekki banana. Það er
ómögulegt að fljúga skökku módeli. Kennslumódel verða yfirleitt
fyrir miklu hnjaski og láta fljótt á sjá, svo að ekki er þörf á að
leggja mikla vinnu í skreytingar. Rétt er þó að klæða það í áberandi
litum svo það sjáist vel. Benda skal þó á að það er ekki á færi
neins byrjenda að fljúga módeli að sjálfsdáðum, það er nauðsynlegt
að fá tilsögn fyrstu flugin, annars getur farið illa og eintómur tími
í viðgerðir í stað ánægju af því að fljúga. Til smíðinnar þarf
þessi áhöld:
Hvaða stærð er hentugust?
Hentug stærð á byrjendamódeli er fyrir 6,5 rúmsentímetra (0,40 rúmtommu)
mótor, eða svokallaðan „40" mótor. Vænghaf um 150 - 170cm. Módel
fyrir „25" eða minni mótor er óþægilega lítið. ATH að það
er hægt að færa mótora á milli flugvéla einnig fjarstýribúnaðinn.
Hvernig fjarstýringu er best að byrja með?
Til eru fjarstýringar af ýmsum gerðum. Fyrir byrjendur eru 4-rása FM
fjarstýringar nægilega góðar. Fjarstýringin þarf að vinna á 35MHz tíðnisviðinu,
sem er frátekið fyrir flugmódel. Ekki má nota þannig fjarstýringu
fyrir báta eða bíla. Sumir hafa fallið í þá freistingu að kaupa
fjarstýringu erlendis og ætla að spara nokkrar krónur, en sjá svo eftir
því þar sem erfitt er að fá varahluti og aukahluti í þannig tæki hér
á landi. Þær fjarstýringar sem eru seldar hér á landi hafa verið prófaðar
af Fjarskiptaeftirlitinu, og eru því af hæsta gæðaflokki. Mikilvægt er
að bæði sendirinn og móttakarinn séu með hleðslurafhlöðum og að
hleðslutæki fylgi tækjunum. Varist að nota rafhlöðuhylki með lausum
rafhlöðum, því þannig frágangur þolir illa titring frá mótor.
Hvað kostar að byrja?
Stofnkostnaður er kanski nokkuð mikill, en hafa verður í huga að
t.d. mótor og fjarstýringu geta menn átt árum saman. Sjálfsagt er að
dreifa kostnaðinum eftir því sem smíðinni miðar áfram. Byrja má á
því að kaupa módel og setja það saman. Nokkrum mánuðum síðar þarf
að kaupa filmu og smáhluti. Nokkru síðar mótor og síðast fjarstýringu.
Kostnaðinum má þannig dreifa á t.d. hálft ár. Hér á eftir eru nokkur
dæmigerð verð:
Er erfitt að fljúga módeli?
Það er mun erfiðara en maður gæti haldið! Allmargir módelflugmenn
hafa lært að fljúga alvöru flugvélum, og þeim kemur saman um að um fjórum
sinnum erfiðara sé að stýra flugvél utan frá en innan frá. Hvers
vegna? Jú, stýrin eru sífellt að breyta um hegðun þegar módeli er
flogið. Þannig verður hægri að vinstri og öfugt þegar snúið er við
og flogið til baka. Öllu snúnara verður það þegar flogið er á
hvolfi; þá víxlast upp og niður, stundum hægri og vinstri, en ekki á
sama hátt hjá hallastýri og hliðarstýri. Reikna má með að það taki
allt að 10 flug með kennara að ná nokkrum tökum á byrjendamódeli, og
er þá hvert flug um 15 mínútur. Næstu flug ganga síðan væntanlega hálf
brösótt, sérstaklega flugtak og lendingar. Námi er þó ekki lokið þá,
og eru menn ekki orðnir sæmilega færir fyrr en eftir um 50 flug. Oft koma
fyrir óhöpp, sérstaklega í byrjun, og verða menn að taka því með
jafnaðargeði. Vel notað byrjendamódel verður fyrir miklu hnjaski og er
oft orðið marglímt og bætt áður en það hefur náð að skila
hlutverki sínu. Menn verða ekki góðir í módelflugi fyrr en eftir nokkuð
langa þjálfun.
Þyrlur
Mun erfiðara er að fljúga módelþyrlu en venjulegu vængjuðu módeli.
Þyrlan er dýrari og varahlutir kosta stórfé. Það er því ráðlegt að
læra fyrst á venjulegt módel.
Hvar eru módelflugvellir?
1) Hamranesflugvöllur: Þetta er stærsti módelflugvöllur
landsins, og með þeim glæsilegri í heiminum. Núvirði framkvæmda á svæðinu
er um 10 milljón krónur svo að greiða verður fyrir afnot. Leiðarvísir:
Ekið er suður í gegn um Hafnarfjörð, þegar komið er lítið eitt yfir
hæðina við kirkjugarðinn þá skal tekin hægri beygja og farið undir
brúna sem er á Reykjanesbrautinni þar er íþróttasvæði Hauka
Hafnarfirði. Ekið er áfram þann veg um 2,5 km leið (um 300 metrum
lengra en háspennulínan og gula spennistöðin) uns komið er að
malarvegi sem liggur til vinstri. Á skilti á vegamótunum stendur
2) Keflavíkurflugvöllur: Þetta er hinn eini og sanni Keflavíkurflugvöllur! (Stóri flugvöllurinn er ekki í Keflavík, heldur á Miðnesheiði). Þarna hafa módelflugmenn á Suðurnesjum gert góðan módelflugvöll. Leiðarvísir: Ekið er í gegn um Keflavík í átt til Garðs. Skömmu eftir að komið er út úr byggðinni (1000 m.) sést völlurinn hægra megin vegarins.
3) Melgerðismelar Akureyri: Þessi völlur er fyrir vélflug, svifflug og módelflug. Svæðið er rekið meðal annars af Flugmódelfélagi Akureyrar. Hafið samband við þá ef ykkur langar til að prófa völlinn. Þetta var á sínum tíma aðalflugvöllur Norðurlands. Leiðarvísir: Ekið um 20 km til suðurs frá Akureyri inn í fjörðinn. Þegar komið er að Edduhótelinu (Hótel Vin) að Hrafnagili er leiðin um það bil hálfnuð. Sjá nánar á vegakorti, þar sem vegurinn greinist nokkuð á leiðinni. Völlurinn er á vinstri hönd og fer varla fram hjá mönnum, því þar er m.a. stórt flugskýli.
Hvaða flugmódelfélög eru á Íslandi?
Þytur er stærsta félagið og eru í því félagar meira og minna frá öllu
landinu. Á Akureyri er Flugmódelklúbbur Akureyrar, á Suðurnesjum er Flugmódelklúbbur Suðurnesja
og á Selfossi klúbburinn Smástund. Á Akranesi
eru allmargir módelflugmenn.
Þytur hefur
heimilisfangið: Pósthólf 5219, 125 Reykjavík. Upplýsingasíma hverju sinni er
að finna á heimasíðu félagsins
Hvað kostar að vera í flugmódelfélagi?
Félagsgjöld skiptast í
þrjá flokka, almenn félagsgjöld, ungmennagjöld og nýliðagjöld. Almennir
félagsmenn greiða félagsgjald eins og það er ákveðið á aðalfundi hverju
sinni. Ungir félagsmenn greiða einn fjórða af félagsjaldi eins og það er
ákveðið á aðalfundi. Ungir félagsmenn eru þeir sem verða 18 ára eða yngri á
viðkomandi félagsári. Nýjir félagar eldri en 18 ára greiða hálft félagsgjald
fyrsta árið. Þeir sem ganga í félagið í september til og með desember
greiða félagsgald næsta árs á eftir.
Hve langt dregur fjarstýringin?
Meira en 1000 metra í lofti ef hún er í lagi, en módelið sést ekki
vel ef það er lengra í burtu en 300 til 500 metra.
Hve hratt flýgur módelið?
Byrjendamódel allt að 70 km/klst, listflugvél 100 til 150 km/klst, hraðfleyg
listflugvél allt að 200 km/klst, þota allt að 350 km/klst.
Hvað gerist ef mótorinn drepur á sér?
Yfirleitt er mjög auðvelt að láta módelið svífa örugglega til jarðar
eins og svifflugu.
Þarf leyfi til að fljúga flugmódeli?
Nei. Einungis gera módelfélögin þá skyldu til manna sem fljúga á sérstökum
módelvöllum að þeir séu í viðurkenndu módelfélagi, og að það félag
sé með tryggingu fyrir sína félagsmenn. Það hefur verið sá
misskilningur í gangi að venjuleg heimils og ábyrgðartrygging sé nóg
en það er rangt. Passið ykkur á því að
vera í viðurkenndu flugmódelfélagi þar sem þú ert tryggður fyrir
mögulegu tjóni á þriðja aðila.
Þarf að kaupa tryggingar?
Félagar í Þyt eru sjálfkrafa aðilar að hóptryggingu,
sem tryggir þá ef þeir verða bótaskyldir vegna tjóns sem þeir valda.
Hámarksbætur eru í dag sambærilegar við ábyrgðartryggingu bifreiða.
Enginn ætti að fljúga ótryggður, því hann gæti orðið öreigi ef
hann veldur slysi; dæmi eru um það erlendis. (Módelflug getur valdið
slysum.)
Get ég kennt mér sjálfur að fljúga?
Nei. Þó er það rétt hugsanlegt ef menn byrja með mjög auðvelda
svifflugu. Útilokað er að fljúga vélflugu hjálparlaust í byrjun.
Þarf ég kennara og hvar fæ ég hann?
Þetta var góð spurning, og því erfitt að svara henni svo vel sé!
Þetta hefur þó aldrei reynst vera vandamál, því módelflugmenn eru mjög
hjálpsamir. Best er að fara út á flugvöll nokkrum sinnum og fylgjast með
mönnum. Fljótlega kynnast menn félögum og sjá hverjir eru sæmilegir
flugmenn. Sjálfsagt er að skýra frá því að maður sé að smíða módel
og vilji fá einhvern til að prufufljúga því. Þegar komið er með módelið
út á völl þarf vanur maður að yfirfara það mjög vandlega. Hann þarf
meðal annars að athuga hvort límingar séu traustar, jafnvægispunktur á
réttum stað (mikilvægt) og hvort stýrifletir hreyfist rétt. Vel getur
farið svo að þú þurfir að fara með módelið aftur heim og lagfæra
eitthvað, því reynslan hefur kennt okkur að ef eitthvað er ekki í
fullkomnu lagi, þá er voðinn vís. Eftir að mótor hefur verið tilkeyrður
er síðan hægt að prufufljúga módelinu, og þú færð vafalítið að
prófa smá stund! Framhaldið kemur síðan af sjálfu sér, en mikilvægt
er að fá mann með töluverða reynslu til að hjálpa þér af stað. Þannig
menn fljúga mikið og eru því oft úti á flugvelli.
- Gangi þér vel!
Vonandi hafðir þú gagn af þessum upplýsingum.
ATH ekki er tekin nein ábyrgð á verðum sem birt eru hér á síðuni þetta er meira til viðmiðunar!